ICELAB

SÍP, Samband íslenskra prófunarstofa

07.02.2023 12:06

Kynningarfundur á CCQ

Þann 15. febrúar kl 8:45-9:30 mun Samband íslenskra prófunarstofa (SÍP) í samvinnu við Origo standa fyrir kynningarfundi á CCQ gæðastjórnunarlausn. Origo býður upp á morgunkaffi í höfuðstöðvum fyrirtækisins Borgartúni 37, Reykjavík. Starfsfólk Origo mun útskýra hvernig CCQ gæðatjórnunarlausn heldur utan um stjórnkerfi samkvæmt ISO stöðlum, persónuverndarlögum og öðrum lögum og reglum.

 

Þetta er mjög gott tækifæri til að kynnast því hvernig léttara er að halda utan um verkferla gæðahandbókar og ábendingar.

 

ATH: kynningin hefst í Borgartúni 37 kl 8:45.

Origo mun bjóða upp á morgunverð á kynningunni.

 

Vinsamlegast skráið ykkur hér svo hægt sé að áætla fjölda:

https://docs.google.com/spreadsheets/d/1FLouQCoYrc8Y0-m_lE7RVxVBMU5ZoCrdY5il18FT8qE/edit?usp=sharing

30.11.2022 15:00

Heimsókn í Marel

Heimsókn í Marel

Samband íslenskra prófunarstofa þakkar kærlega fyrir góða heimsókn í Marel þann 30. nóvember 2022.

 
 

Tekið var vel á móti okkur af Sveini Kjarval, viðburðarstjóra Marels og Ólafi Hansen gæðastjóra.

Sveinn kynnti Marel og Ólafur gæðamál þess en þar er lögð áhersla á að lágmarka sóun en ekki einblínt á staðla.

Brynjar Ingi Óðinsson sagði frá bestun á framleiðsluferli með „lean“ nálgun sem

skilaði árangri langt umfram settum markmiðum. Að fyrirspurnum loknum var boðið upp á að horfa yfir framleiðslusalina.

 

Kynningin var mjög vel sótt af félagsmönnum og fór nokkuð fram yfir auglýstan tíma vegna mikils áhuga og margra spurninga. 

 

 

 

22.08.2022 10:51

Vinnustofa í mælifræði loftlagsaðgerða á vegum BIPM og WMO með aðkomu Eurolab

SÍP vill vekja athygli félagsmanna á vinnustofu í mælifræði loftlagsaðgerða

 

BIPM-WMO Metrology for Climate Action Workshop.

 

The workshop will take place online from 26 to 30 September 2022, hosted by the Bureau International des Poids et Mesures (BIPM) and the World Meteorological Organization, in collaboration with EURAMET - The European Association of National Metrology Institutes. 

 

Registration is free of charge, and it is open to experts and stakeholders active in the fields of climate science, observations, greenhouse gas (GHG) mitigation and measurement, modelling and measurement science willing to contribute to the development of recommendations on key technical challenge areas for metrology in these fields.

 

The week-long online event will examine progress and future requirements for metrologists to support climate change science, and identify gaps in provision and barriers to effective mitigation of climate change and impacts.

 

The output of the workshop will be a set of recommendations on key technical challenge areas for metrology over the next decade.

 

Further details, programme and registration are available on the workshop website

 

 

11.08.2022 14:11

Tvö námskeið hjá Skilvirk Ráðgjöf

Vakin er athygli á tveimur námskeiðum sem Skilvirk Ráðgjöf býður upp á

Gæðastjórnunarstaðallinn ISO 9001:2015

Þann 28. september nk. verðum við með námskeið um gæðastjórnunarstaðalinn ISO 9001:2015 þar sem staðallinn verður kynntur, kröfur hans, innleiðingarferli og ýmsar hagnýtar upplýsingar.

Frekari upplýsingar um námskeiðið og skráningarform er að finna hér: Námskeið - ISO 9001 | Skilvirk

 

Innri úttektir

Dagana 12. og 13. október nk. verðum við með námskeið um innri úttektir í samræmi við staðalinn ISO 9001:2015. Þetta er yfirgripsmikið námskeið sem fjallar um undirbúning, framkvæmd, lok og eftirfylgni innri úttekta í samræmi við staðalinn ISO 19011 Leiðbeiningar um innri úttektir stjórnunarkerfa.

Frekari upplýsingar um um námskeiðið og skráningarform er að finna hér:  Námskeið - Innri úttektir | Skilvirk

11.08.2022 14:00

Námskeið Eurachem um mælióvissu

Vakin er athygli á fríu vefnámskeiði sem Eurachem býður upp á um mælióvissu.

https://www.eurachem.org/index.php/events/workshops/433-wks-muihv-22 

08.08.2022 17:10

Aðalfundur SÍP

Ágætu félagar!

Aðalfundur  SÍP verður haldinn miðvikudaginn 24. ágúst 2022 kl. 15.00.

Fundurinn verður í húsakynnum Mannvits, Víkurhvarfi 8, 203 Kópavogi.

 

DAGSKRÁ

  1. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til samþykktar.
  2. Formaður skýrir frá störfum félagsins á liðnu ári.
  3. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins.
  4. Félagsgjöld ákveðin.
  5. Kosning stjórnar.
  6. Formaður kosinn.
  7. Skoðunarmaður reikninga kosinn.
  8. Lagabreytingar (engar tillögur hafa komið fram um lagabreytingar).
  9. Önnur mál.

Vinsamlegast tilkynnið Elísabetu þátttöku á betajona@hi.is eigi síðar en 22. ágúst. Hægt er að taka þátt í fundinum rafrænt gegnum Microsoft Teams og þeir sem þess óska fá sent Teams fundarboð.

 

Með ósk um góða þátttöku allra félaga.

Stjórn SÍP

05.08.2022 10:28

Aðalfundur SÍP

Aðalfundur SÍP verður haldinn miðvikudaginn 24. ágúst. Staðsetning auglýst síðar en fundurinn verður einnig á Teams.

Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta og taka þátt í mótun félagsstarfsins.

16.03.2022 15:29

Heimsókn á Tæknisetur

Samband íslenskra prófunarstofa þakkar kærlega fyrir góða heimsókn á Tæknisetur þann 16. mars 2022.

Tekið var vel á móti okkur af Guðbjörgu Hrönn Óskarsdóttur, framkvæmdarstjóra Tækniseturs, ásamt hópi starfsmanna úr hinum ýmsu greinum. Heimsóknin hófst á almennri kynningu á starfseminni og svo var gengið um og tæki og búnaður skoðaður.

Kynningin var vel sótt af félagsmönnum og fór nokkuð fram yfir auglýstan tíma vegna mikils áhuga og margra spurninga. 

Heimsókn á Tæknisetur
Heimsókn á Tæknisetur
Heimsókn á Tæknisetur
Heimsókn á Tæknisetur

08.03.2022 15:37

Kynningarfundur á starfsemi Tækniseturs

Þann 16.mars kl 8:30-10:00 mun Samband íslenskra prófunarstofa (SÍP) í samvinnu við Tæknisetur standa fyrir kynningarfundi á starfsemi Tækniseturs. Tæknisetur er með aðsetur að Árleyni 2-8, þar sem kynningin fer fram.

Starfsemi Tækniseturs byggir á reynslu á sviði efnistækni, lífvísinda og orkumála og reynslu sem mikilvægur samstarfsaðili í bæði innlendum og erlendum rannsóknar og þróunarverkefnum. Hagnýtar rannsóknir og þróun eru mikilvægur hluti af starfsemi Tækniseturs.

Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir framkvæmdarstjóri Tækniseturs ehf. hefur umsjón með kynningunni.

 

Dagskrá kynningar er eftirfarandi:

  • Almenn kynning
  • Aðstaða skoðuð, gengið um og tæki og aðstaða skoðuð t.d. ramanlitrófsgreinir, röntgensneiðmyndatæki, rafeindasmásjá, hjólfarapróf, togþolstæki svo fátt eitt sé nefnt.
  • Kaffi og spjall. Kaffiveitingar eru í boði SÍP.

 

 

01.10.2021 08:27

Aðalfundur SÍP

Aðalfundur SÍP var haldinn 28. september 2021 í húsnæði Frumherja, Kletthálsi 1A og í fjarfundarkerfi.

Fundargerð aðalfundar ásamt skýrslu stjórnar má finna undir flipanum Fundargerðir og skýrslur stjórnar hér hægra megin 

Ný stjórn var kjörin, Halla Halldórsdóttir kemur ný inn og Hrólfur Sigurðsson hættir. Stjórnin þakkar Hrólfi fyrir gott starf í þágu félagsins. Elísabet Sólbergsdóttir gaf áfram kost á sér sem formaður og var kosin með öllum atkvæðum

Elísabet Sólbergsdóttir Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði  -  formaður
Halla Halldórsdóttir Matís ohf, 
Guðgeir Svavarsson Frumherji hf. 
Elín Ásgeirsdóttir, Malbikunarstöðin Höfði hf.
Guðrún Eva Jóhannsdóttir, Mannvit hf.

09.09.2021 16:47

Vinnustofa um mælióvissu á vegum Eurachem

Eurachem heldur vinnustofu um mælióvissu 19-22. janúar 2022

https://www.eurachem.org/index.php/events/workshops/394-wks-aqa2022

Þeir sem hafa áhuga er bent á að forskrá sig á síðu Eurachem

 

09.09.2021 16:42

Aðalfundur 28. september

Aðalfundur SÍP verður þann 28. september næstkomandi.

Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Frumherja að Kletthálsi 1A ásamt því að vera fjarfundur.

Sem fyrr hvetjum við að sjálfsögðu alla félagsmenn til þess að mæta og taka með því virkan þátt í að móta félagsstarfið. Þeir sem vilja taka þátt í fjarfundi geta haft samband við gudruneva @ mannvit.is

 

Með kveðju, 

Stjórn SÍP

14.04.2021 10:03

Aðalfundur SÍP

Stjórn SÍP hefur tekið ákvörðun um að færa aðalfund fram í september vegna covid-takmarkana.

Stefnt er á að halda fundinn þriðjudaginn 14. september, bæði sem hefðbundinn fund og sem fjarfund.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla félagsmenn til þess að mæta og taka með því virkan þátt í að móta félagsstarfið.

Stjórn SÍP

14.04.2021 09:17

Aðalfundir Eurolab og Eurachem

Eurolab, samband prófunarstofa í Evrópu, fagnaði 30 ára starfsafmæli 2020 og heldur aðalfund þann 27. apríl 2021 á netinu https://www.eurolab.org/newsarticles/SAVE-THE-DATE%3A-EUROLAB-General-Assembly%2C-27-April-2021%2C-12%3A00h-%E2%80%93-16%3A00h---Remote-conference

Eurachem mun einnig halda sinn aðalfund á netinu dagana 20-21. maí 2021 https://www.eurachem.org/index.php/events/calendar/icalrepeat.detail/2021/05/20/30/-/eurachem-general-assembly-2021

05.10.2020 09:33

SÍP kynning 2020.pdf

Elísabet Sólbersdóttir, formaður SÍP, kynnti félagið fyrir þátttakendum Steinsteypudagsins 2020. Kynninguna er að finna undir flipanum Fundargerðir og skýrslur stjórnar hér til hliðar.

Tenglar