Námskeið í áhættumati fór fram á vegum SÍP þann 22. janúar 2025.
Kennari námskeiðsins var Ólafur R. Rafnsson, formaður tækninefndar hjá Staðlaráði Íslands og ráðgjafi í áhættustjórnun og upplýsingaöryggi hjá Skjöld Ráðgjöf.
Efni námskeiðsins var mjög áhugavert og snertir alla þá sem vinna í stöðluðu umhverfi en meðal þess sem farið var yfir m.t.t. áhættumats var skipulag, stýring, lykilhugtök, ábyrgð, markmið og aðferðir svo fátt eitt sé nefnt
Um 15 manns sóttu námskeiðið, bæði í fundarsal og í gegnum Teams og spunnust nokkrar umræður eftir fyrirlesturinn þar sem Ólafur svaraði spurningum úr sal.
SÍP innheimti einungis 3500 kr skráningargjald og niðurgreiddi því að verulegu leiti námskeiðisgjald til félagsmanna.