ICELAB

SÍP, Samband íslenskra prófunarstofa

05.10.2020 09:26

Aðalfundur SÍP

Aðalfundur SÍP var haldinn á Rannsóknarstofu Mannvits, Víkurhvarfi 8, 203 Kópavogi og í fjarfundarkerfi Microsoft Teams, þann 30. september 2020 kl 15:00

Fundargerð aðalfundar ásamt skýrslu stjórnar má finna undir flipanum Fundargerðir og skýrslur stjórnar hér hægra megin

Ný stjórn var kjörin, Guðgeir Svavarsson hjá Frumherja kemur nýr inn og Hallgrímur S. Hallgrímsson hættir. Stjórnin þakkar Hallgrími fyrir gott starf í þágu félagsins. Elísabet Sólbergsdóttir gaf áfram kost á sér sem formaður og var kosin með öllum atkvæðum

Elísabet Sólbergsdóttir Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði  -  formaður
Hrólfur Sigurðsson Matís ohf, - ritari
Guðgeir Svavarsson Frumherji hf. 
Elín Ásgeirsdóttir, Malbikunarstöðin Höfði hf.
Guðrún Eva Jóhannsdóttir, Mannvit hf.

04.06.2020 13:26

Frestun aðalfundar SÍP

Stjórn SÍP hefur tekið ákvörðun um að fresta aðalfundi fram í september. Nánari tímasetning verður auglýst síðar. 

Með von um góða þáttöku í september.

Stjórn SÍP

 

07.01.2020 12:46

Annað námskeið í ÍST EN ISO/IEC 17025:2017

Vegna eftirspurnar höfum við bætt við öðru námskeiði.

Dagana 14 - 15 janúar n.k. mun Samband íslenskra prófunarstofa (SÍP) í samvinnu við Jensen ráðgjöf halda námskeið um nýjustu útgáfu ÍST EN ISO/IEC 17025:2017: Almennar kröfur varðandi hæfni prófunar- og kvörðunarstofa.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti beitt kröfum staðalsins til þess að koma á, innleiða, viðhalda og gera umbætur á stjórnunarkerfi fyrir prófunar- og kvörðunarstofur

Meðal dagskrárliða námskeiðsins eru

  • Farið almennt yfir ISO/IEC 17025
  • Meginbreytingar í 2017 útgáfu
  • Skilgreiningar
  • Kröfur staðalsins
  • Spurningar og verkefni
  • Umræður og samantekt

 

Námskeiðið eru tveir hálfir dagar:

14. janúar 12:30 til 17:00 og 15. janúar 8:30 til 12:00.

Glærum á pdf formi er dreift með tölvupósti 36 klst á undan námskeiði.

Staðsetning námskeiðsins er í sal Staðlaráðs Íslands í Þórunnartúni 2, 105 Reykjavík.

Verð fyrir félagsmenn er 38.000 kr en 68.000 kr fyrir utanfélagsmenn, innifalið er kaffi og meðlæti.

Skráning á námskeiðið fer fram í tölvupósti á betajona@hi.is og skráningarfrestur er til 10. janúar Athugið að einungis takmarkaður fjöldi kemst að.

12.09.2019 08:31

ÍST EN ISO/IEC 17025:2017 Almennar kröfur varðandi hæfni prófunar- og kvörðunarstofa

Dagana 11-12. nóvember n.k. mun Samband íslenskra prófunarstofa (SÍP) í samvinnu við Jensen ráðgjöf halda námskeið um nýjustu útgáfu ÍST EN ISO/IEC 17025:2017: Almennar kröfur varðandi hæfni prófunar- og kvörðunarstofa.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti beitt kröfum staðalsins til þess að koma á, innleiða, viðhalda og gera umbætur á stjórnunarkerfi fyrir prófunar- og kvörðunarstofur

Meðal dagskrárliða námskeiðsins eru

  • Farið almennt yfir ISO/IEC 17025
  • Meginbreytingar í 2017 útgáfu
  • Skilgreiningar
  • Kröfur staðalsins
  • Spurningar og verkefni
  • Umræður og samantekt

 

Námskeiðið eru tveir hálfir dagar:

11. nóvember 12:30 til 17:00 og 12. nóvember 8:30 til 12:00.

Glærum á pdf formi er dreift með tölvupósti 36 klst á undan námskeiði.

Staðsetning námskeiðsins er í sal Staðlaráðs Íslands í Þórunnartúni 2, 105 Reykjavík.

Verð fyrir félagsmenn er 38.000 kr en 68.000 kr fyrir utanfélagsmenn, innifalið er kaffi og meðlæti.

Skráning á námskeiðið fer fram í tölvupósti á elina@malbik.is Athugið að einungis takmarkaður fjöldi kemst að.

02.09.2019 13:23

Námskeið: ISO/IEC 17025:2017 - "From theory to practice"

Frekari upplýsingar má finna hér: http://www.ec4le.eu/

 

It is our great pleasure to announce the International Master Class on implementation of ISO/IEC 17025:2017 – „From theory to practice”. It will be held in Brussels from 25 to 27 of November 2019.

This International Master Class will on the one hand bring together laboratory personnel who are responsible for the implementation, maintenance, improvement and operation of the laboratory management system, with experienced international trainers. They will discuss and most importantly investigate how to apply the revised international standard ISO/IEC 17025.

Similar classes were organised in April 2018 in Zagreb and in December 2018, April 2019, June 2019 in Brussels, with participants from many different countries sharing and discussing their issues and experiences.

The focus of this three-day event will be the practical application of the new standard. The intention is to have a very interactive course, with problem based learning. Participants will leave with knowledge and skills to get from theory into practical application and to discover the most cost effective way to adapt the standard to their organisation. They will also have an opportunity to discuss with the trainers and their peers on their very specific issues they are struggling with.

We look forward to seeing you in Brussels in November 2019!

05.06.2019 10:38

Vinnustofa hjá Eurachem um óvissu

Eurachem heldur vinnustofu fyrir starfsfólk faggiltra rannsóknarstofa um óvissu í mælingum

Vinnustofan er haldin í BAM (Bundesanstalt für Materialforschung und -prüfung) í Berlín dagana 19-20 nóvember 2019

Sjá nánar á Eurachem hér

29.05.2019 14:23

Aðalfundur SÍP

Aðalfundur Sambands íslenskra prófunarstofa var haldinn á Rannsóknarstofu í lyfja og eiturefnafræði, Haga þann 28. maí 2019

Fundargerð aðalfundar ásamt skýrslu stjórnar má finna undir flipanum Fundargerðir og skýrslur stjórnar hér hægra megin

Stjórn félagsins er óbreytt frá síðasta ári

Elísabet Sólbergsdóttir Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði  -  formaður
Hrólfur Sigurðsson Matís ohf, - ritari
Hallgrímur S. Hallgrímsson Frumherji hf. - gjaldkeri
Elín Ásgeirsdóttir, Malbikunarstöðin Höfði hf.
Guðrún Eva Jóhannsdóttir, Mannvit hf.

27.05.2019 09:44

Námskeið um innleiðingu ISO/ICE 17025:2017 haldið af Eurolab 12-14 júní 2019 í Brussel. Skráningu líkur 31. maí.

http://www.eurolab.org/newsarticle.aspx?NewsId=267

 

Linkur á handbók Eurolab um ISO IEC EUROLAB Handbook ISO IEC 17025 2017 (1).pdf

13.05.2019 14:14

Aðalfundur SÍP

Ágætu félagar!

Hér með er boðað til aðalfundar SÍP þriðjudaginn 28. maí 2019 kl. 15.00. Fundurinn verður í húsakynnum Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, Haga, Hofsvallagötu 53 suðurendi, Reykjavík.

 

DAGSKRÁ

  1. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til samþykktar.
  2. Formaður skýrir frá störfum félagsins á liðnu ári.
  3. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins.
  4. Félagsgjöld ákveðin.
  5. Kosning stjórnar.
  6. Formaður kosinn.
  7. Skoðunarmaður reikninga kosinn.
  8. Lagabreytingar (engar tillögur hafa komið fram um lagabreytingar).
  9. Önnur mál.

 

Með ósk um góða þátttöku allra félaga.

Stjórn SÍP

20.06.2018 08:28

Örbæklingur frá Eurachem

Upplýsingabæklingur frá Eurachem um nýju útgáfu staðalsins ISO 17025 General requirements for the competence of testing and calibration laboratories en töluverðar breytingar hafa orðið á staðlinum frá fyrri útgáfu.



08.06.2018 14:33

Aðalfundur SÍP 2018

Aðalfundur SÍP  var haldinn í húsakynnum Frumherja að Þarabakka 3 þann 24. maí 2018. 

Ný stjórn var kjörin en formaður félagsins, Stefán Jóhann Björnsson hætti í stjórn og er honum þakkað gott starf í þágu félagsins. 

Aðrir stjórnarmenn gáfu áfram kost á sér til starfa fyrir félagið og að auki var Elín Ásgeirsdóttir kosin í stjórn. Núverandi stjórn er því skipuð eftirtöldum:

Elísabet Sólbergsdóttir Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði  -  formaður
Hrólfur Sigurðsson Matís ohf, - ritari
Hallgrímur S. Hallgrímsson Frumherji hf. - gjaldkeri
Elín Ásgeirsdóttir, Malbikunarstöðin Höfði hf.
Guðrún Eva Jóhannsdóttir, Mannvit hf.

Finna má fundargerð aðalfundar undir flipanum "Fundargerðir og skýrslur stjórnar". 



25.04.2018 15:44

Aðalfundur SÍP 2018 - Fundarboð

SÍP

SAMBAND ÍSLENSKRA PRÓFUNARSTOFA

Fundarboð

AÐALFUNDUR SAMBANDS ÍSLENSKRA PRÓFUNARSTOFA

 

Ágætu félagar!

Hér með er boðað til aðalfundar SÍP fimmtudaginn 24. maí 2018 kl. 15.00. Fundurinn verður í húsakynnum Frumherja að Þarabakka 3, Reykjavík.

DAGSKRÁ

  1. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til samþykktar.
  2. Formaður skýrir frá störfum félagsins á liðnu ári.
  3. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins.
  4. Félagsgjöld ákveðin.
  5. Kosning stjórnar.
  6. Formaður kosinn.
  7. Skoðunarmaður reikninga kosinn.
  8. Lagabreytingar (engar tillögur hafa komið fram um lagabreytingar).
  9. Önnur mál.

Vinsamlegast tilkynnið Stefáni þátttöku á annabe@internet.is eigi síðar en 23. maí.

 

Með ósk um góða þátttöku allra félaga.

Stjórn SÍP

24.04.2018 09:16

Áhugaverðir fyrirlestrar á EUROLAB - BULLAB International Conference

EUROLAB - BULLAB International Conference var haldin 19. apríl í Varna. Hér að neðan er hlekkur á fyrirlestra: https://www.dropbox.com/sh/6kkzovs9hyn8h9u/AAAdTnMjRnbnjUaVi0E6fDsJa?dl=0

24.11.2017 09:47

Kynningarfundur Staðlaráðs

Samband íslenskra prófunarstofa SÍP stendur fyrir kynningarfundi hjá Staðlaráði Íslands http://www.stadlar.is/ þann 30. nóvember næstkomandi kl 8:30.

 

Guðrún Rögnvaldardóttir framkvæmdastjóri Staðlaráðs mun kynna starfsemi og skyldur Staðlaráðs.

Farið verður yfir mikilvægi notkunar á stöðlum í hinum ýmsu geirum atvinnulífsins.

 

Að lokum geft tækifæri til að spyrja spurninga og taka upp spjall um notkun og gildi staðla.

 

Kynningin hefst klukkan 8:30 á húsnæði Staðlaráðs á þriðju hæð við Þórunnartún 3 en er reiknað með að kynningrfundur standi til um 10.00.

 

Við hvetjum sem flesta meðlimi SÍP að mæta.

 

Vinsamlega sendið staðfestingarpóst ásamt fjölda þátttakanda á Stefán sbjornsson hjá ossur.com

 

Heitt á könnunni.

 

Kveðja

Stjórn SÍP

 

07.06.2017 16:48

Aðalfundur SÍP 2017

Aðalfundur SÍP  var haldinn miðvikudaginn 7. júní í húsnæði Mannvits hf. Það bar helst til tíðinda að ný stjórn var kjörin en formaður félagsins, Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, gaf ekki lengur kost á sér. Er henni þakkað starf í þágu félagsins. 

Aðrir stjórnarmenn gáfu áfram kost á sér til starfa fyrir félagið og að auki var Guðrún Eva Jóhannsdóttir kosin í stjórn. Núverandi stjórn er því skipuð eftirtöldum:

Elísabet Sólbergsdóttir Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði
Hrólfur Sigurðsson Matís ohf, - ritari
Hallgrímur S. Hallgrímsson Frumherji hf. - gjaldkeri
Stefán Björnsson, Össur h.f. - formaður
Guðrún Eva Jóhannsdóttir, Mannvit hf.

Finna má skýrslu formanns undir flipanum "Fundargerðir og skýrslur stjórnar". Fundargerð aðalfundar verður sett þar inn þegar hún liggur fyrir. 

Tenglar