| 
			 Aðalfundur SÍP  var haldinn miðvikudaginn 7. júní í húsnæði Mannvits hf. Það bar helst til tíðinda að ný stjórn var kjörin en formaður félagsins, Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, gaf ekki lengur kost á sér. Er henni þakkað starf í þágu félagsins.  
			Aðrir stjórnarmenn gáfu áfram kost á sér til starfa fyrir félagið og að auki var Guðrún Eva Jóhannsdóttir kosin í stjórn. Núverandi stjórn er því skipuð eftirtöldum: 
			Elísabet Sólbergsdóttir Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði 
			Hrólfur Sigurðsson Matís ohf, - ritari Hallgrímur S. Hallgrímsson Frumherji hf. - gjaldkeri 
			Stefán Björnsson, Össur h.f. - formaður 
			Guðrún Eva Jóhannsdóttir, Mannvit hf. 
			Finna má skýrslu formanns undir flipanum "Fundargerðir og skýrslur stjórnar". Fundargerð aðalfundar verður sett þar inn þegar hún liggur fyrir.  
			 |