SÍP
SAMBAND ÍSLENSKRA PRÓFUNARSTOFA
Fundarboð
AÐALFUNDUR SAMBANDS ÍSLENSKRA PRÓFUNARSTOFA
Ágætu félagar!
Hér með er boðað til aðalfundar SÍP fimmtudaginn 24. maí 2018 kl. 15.00. Fundurinn verður í húsakynnum Frumherja að Þarabakka 3, Reykjavík.
DAGSKRÁ
- Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til samþykktar.
- Formaður skýrir frá störfum félagsins á liðnu ári.
- Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins.
- Félagsgjöld ákveðin.
- Kosning stjórnar.
- Formaður kosinn.
- Skoðunarmaður reikninga kosinn.
- Lagabreytingar (engar tillögur hafa komið fram um lagabreytingar).
- Önnur mál.
Vinsamlegast tilkynnið Stefáni þátttöku á annabe@internet.is eigi síðar en 23. maí.
Með ósk um góða þátttöku allra félaga.
Stjórn SÍP