ICELAB SÍP, Samband íslenskra prófunarstofa |
|||||||||
07.01.2015 11:29Heimsókn til ACTAVIS á aðventu 2014Þann 16. desember s.l. bauð ACTAVIS félagsmönnum SÍP í heimsókn til sín. Mætt voru um 40 manns og voru móttökur afskaplega góðar. Kynning var á starfsemi fyrirtækisins, bæði almennt og sértækt er varðar gæðamál. Að lokum voru rannsóknarstofur fyrirtækisins skoðaðar. Mjög vel var staðið að þessari heimsókn og þakkar stjórn SÍP ACTAVIS kærlega fyrir möttökurnar!
29.09.2014 08:57Gæðatengd námskeið og leiðbeiningar1. PT workshop 2014 October 6-9 in Berlin
04.06.2014 17:00Aðalfundur 2014Aðalfundur SÍP var haldinn miðvikudaginn 4. júní s.l. hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf þ.s. skýrsla stjórnar var lögð fram sem og endurskoðaðir reikningar félagsins. Formaður og stjórn voru endurkjörin. Fundargerð aðalfundar og skýrslu stjórnar má finna undir flipanum fundargerðir og skýrslur stjórnar. 28.05.2013 10:48Fræðslufundur hjá FrumherjaÁrlegur fræðslufundur félagsins var haldinn hjá Frumherja þann 27. febrúar s.l. Vel var tekið á mót félagsmönnum og flutt voru fræðandi erindi um starfsemina. Að því loknu var prófunaraðstaða Frumherja skoðuð.
26.09.2012 08:55Námskeið hjá MatísVakin er athygli á námskeiði þann 7. nóvember, sem haldið verður hjá MATÍS „Kurs i Utbyte (Recovery) vid kemiska analytiska mätningar“. Nánari upplýsingar má sjá hér: Annosering a recovery kurset. 26.09.2012 08:52Eurolab cookbooks
Ágætu meðlimir SÍP. 14.06.2012 18:42Frá aðalfundi SÍPAðalfundur SÍP var haldinn þriðjudaginn 5. júní sl. Mæting verður að teljast góð en fulltrúar frá um 50% þeirra fyrirtækja sem eru aðilar að sambandinu voru mættir. Formaður, meðstjórnendur og skoðunarmaður reikninga voru allir endurkjörnir. Formaður greindi frá starfsemi liðins árs og sagði frá aðalfundi EUROLAB. Á meðal þess sem kom fram í þeirri kynningu var að EUROLAB vinnur að handbók um öryggi og heilsu á rannsóknarstofum. Bókin verður aðgengileg öllum á heimasíðu EUROLAB þegar þar að kemur en reiknað er með að það verði fyrr en síðar. Einnig kom fram að á heimasíðu EUROLAB má finna ýmiss konar gagnlegt efni, s.s. um óvissuútreikninga, handbækur o.fl. (hér). Skrifað af þh 04.06.2012 21:39Aðalfundur 2012Boðað hefur verið til aðalfundar SÍP árið 2012. Fundurinn verður þriðjudaginn 5. júní kl. 15 hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands að Keldnaholti. Hefðbundin aðalfundarstörf. Skrifað af þh 04.06.2012 21:22Álverið í Straumsvík | HeimsóknÁrlegur fræðslufundur félagsins var haldinn 22. febrúar s.l. Að þessu sinni fjallaði fjallaði hann um prófunarstarfsemi hjá álverinu í Straumsvík. Alcan leggur mikinn metnað í að framleiða sérhæft hágæðaál og stýringu á gæðum í samræmi við óskir viðskiptavina. Góð þátttaka var á fundinum eða um 20 manns. Fræðst var um prófunaraðstöðu, gæðastjórnun og prófun á framleiðsluvörum fyrirtækisins. Skrifað af þh |
Eldra efni
Tenglar |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is