Aðalfundur SÍP var haldinn í húsakynnum Frumherja að Þarabakka 3 þann 24. maí 2018.
Ný stjórn var kjörin en formaður félagsins, Stefán Jóhann Björnsson hætti í stjórn og er honum þakkað gott starf í þágu félagsins.
Aðrir stjórnarmenn gáfu áfram kost á sér til starfa fyrir félagið og að auki var Elín Ásgeirsdóttir kosin í stjórn. Núverandi stjórn er því skipuð eftirtöldum:
Elísabet Sólbergsdóttir Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði - formaður
Hrólfur Sigurðsson Matís ohf, - ritari
Hallgrímur S. Hallgrímsson Frumherji hf. - gjaldkeri
Elín Ásgeirsdóttir, Malbikunarstöðin Höfði hf.
Guðrún Eva Jóhannsdóttir, Mannvit hf.
Finna má fundargerð aðalfundar undir flipanum "Fundargerðir og skýrslur stjórnar".