Vegna eftirspurnar höfum við bætt við öðru námskeiði.
Dagana 14 - 15 janúar n.k. mun Samband íslenskra prófunarstofa (SÍP) í samvinnu við Jensen ráðgjöf halda námskeið um nýjustu útgáfu ÍST EN ISO/IEC 17025:2017: Almennar kröfur varðandi hæfni prófunar- og kvörðunarstofa.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti beitt kröfum staðalsins til þess að koma á, innleiða, viðhalda og gera umbætur á stjórnunarkerfi fyrir prófunar- og kvörðunarstofur
Meðal dagskrárliða námskeiðsins eru
- Farið almennt yfir ISO/IEC 17025
- Meginbreytingar í 2017 útgáfu
- Skilgreiningar
- Kröfur staðalsins
- Spurningar og verkefni
- Umræður og samantekt
Námskeiðið eru tveir hálfir dagar:
14. janúar 12:30 til 17:00 og 15. janúar 8:30 til 12:00.
Glærum á pdf formi er dreift með tölvupósti 36 klst á undan námskeiði.
Staðsetning námskeiðsins er í sal Staðlaráðs Íslands í Þórunnartúni 2, 105 Reykjavík.
Verð fyrir félagsmenn er 38.000 kr en 68.000 kr fyrir utanfélagsmenn, innifalið er kaffi og meðlæti.
Skráning á námskeiðið fer fram í tölvupósti á betajona@hi.is og skráningarfrestur er til 10. janúar Athugið að einungis takmarkaður fjöldi kemst að.