ICELAB

SÍP, Samband íslenskra prófunarstofa

12.09.2019 08:31

ÍST EN ISO/IEC 17025:2017 Almennar kröfur varðandi hæfni prófunar- og kvörðunarstofa

Dagana 11-12. nóvember n.k. mun Samband íslenskra prófunarstofa (SÍP) í samvinnu við Jensen ráðgjöf halda námskeið um nýjustu útgáfu ÍST EN ISO/IEC 17025:2017: Almennar kröfur varðandi hæfni prófunar- og kvörðunarstofa.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti beitt kröfum staðalsins til þess að koma á, innleiða, viðhalda og gera umbætur á stjórnunarkerfi fyrir prófunar- og kvörðunarstofur

Meðal dagskrárliða námskeiðsins eru

  • Farið almennt yfir ISO/IEC 17025
  • Meginbreytingar í 2017 útgáfu
  • Skilgreiningar
  • Kröfur staðalsins
  • Spurningar og verkefni
  • Umræður og samantekt

 

Námskeiðið eru tveir hálfir dagar:

11. nóvember 12:30 til 17:00 og 12. nóvember 8:30 til 12:00.

Glærum á pdf formi er dreift með tölvupósti 36 klst á undan námskeiði.

Staðsetning námskeiðsins er í sal Staðlaráðs Íslands í Þórunnartúni 2, 105 Reykjavík.

Verð fyrir félagsmenn er 38.000 kr en 68.000 kr fyrir utanfélagsmenn, innifalið er kaffi og meðlæti.

Skráning á námskeiðið fer fram í tölvupósti á elina@malbik.is Athugið að einungis takmarkaður fjöldi kemst að.

Tenglar